Gjafavara


Við erum með fjölbreytt úrval af fallegri gjafavöru. Fullkomið fyrir jóla-, afmælis-, fermingar-, morgun- fyrirtækja- eða brúðkaupsgjafir. Okkar vinsælu Loforð Silki vörur slá alltaf í gegn ásamt fallegu og vönduðu skarti þar á meðal frá íslenska merkinu Mjöll. Koddaspreyin vinsælu frá sjálfbæra merkinu Aery ásamt kertunum, sápunum, ilmstráunum og herbergisilmunum fara mjög vel með silkivörunum. Einnig bjóðum við upp á gjafakassa og getum orðið að óskum ykkar með samsetningu á gjafakassa. Endilega sendu okkur línu ef áhugi er á því. 

Gjafakassar


Loforð gjafakassarnir eru handgerðir af okkur, þar setjum við saman vinsælustu vörurnar okkar í veglegan pakka á betra verði sem hentar fyrir öll kyn og aldur. Það er minnsta mál að óska eftir öðrum lit á silkivörurnar eða jafnvel búa til þína drauma blöndu af silki- og ilmvörum. Sendu okkur línu með því að ýta hérna

Loforð silkivörur


Allar Loforð Silkivörurnar eru framleiddar undir stöngustu gæðakröfum úr 22 momme 6A Mulberry silki. Efnið er með OEKO-TEX standard 100 vottunina. Silki er náttúrulegt efni sem fer einstaklega vel með húð og hár. Það hefur marga einstaka kosti þar á meðal að veita hitatemprun, hefur bakteríudrepandi áhrif, dregur úr hrukkumyndun, dregur ekki í sig rakann frá húðinni þinni og er nærandi og mjúkt fyrir húð og hár.

Aery ilmvörurnar


Aery framleiðir sjálfbærar og umhverfisvænar ilmvörur úr 100% náttúrulegum efnum úr plöntum án paraffin, pálmaolíu og án „GMO’s“. Allar vörurnar eru vegan og cruelty-free. Það er ekki notast við neitt plast í pakkningunum og allt efni er allt endurvinnanlegt og/eða endurnýtanlegt. Við erum gríðarlega stolltar að bjóða upp á þeirra vönduðu vörur af koddaspreyum, herbergisilmum, kertum og núna sápum, ilmstráum og handaáburðum. Við vonandi munum auka úrvalið jafnt og þétt á næstunni til þess að mæta eftirspurn.

Gæsunar vörur


Fallegir merktir sloppar og borðar fyrir brúðina og brúðarmeyjarnar sem hentar fyrir stóra daginn, gæsunina eða dekur. Komdu vinkonu þinni á óvart og nældu þér í þessa fallegu vörur. Munum vonandi bjóða enn meira úrval af gæsunar vörum í nánustu framtíð svo fylgstu með!