Settu saman þitt eigið brúðarkit!
Engar tvær brúðir eru eins og það sama á við um þarfir þeirra á brúðkaupsdaginn!
Við hjá Loforði höfum tekið saman úrval af handhægum og nytsamlegum vörum sem geta komið sér einstaklega vel á stóra deginum.
Hvort sem þig vantar hársprey til að halda greiðslunni á sínum stað, fatalím til að tryggja að kjóllinn sitji fullkomlega eða blettahreinsi fyrir óvæntu óhöppin, þá getur þú valið nákvæmlega það sem hentar þér.
Svona virkar þetta:
- Veldu að lágmarki 5 vörur úr úrvalinu okkar.
- Afsláttur af völdum vörum reiknast sjálfkrafa. Á tilboðsdögum er afslátturinn 20% og annars 10%.
- Fáðu fallega Loforð-snyrtitösku að verðmæti 990 kr. með í kaupunum!
Allt sem þú þarft á einum stað, sérsniðið að þínum brúðkaupsdegi.
Þitt brúðkaup, þitt kit!







