Loforð · Gott að vita
Algengar spurningar
Hér finnurðu svör við algengum spurningum um brúðarkjóla, mátun og fataleigu. Veldu flokk og opnaðu spurningu til að lesa svarið.
Mátun · Pöntun · Breytingar
Brúðarkjólar
Allt það helsta fyrir ferðina að draumakjólnum.
Hvernig bóka ég tíma?
Þú getur bókað tíma með því að ýta á „Bóka tíma“ efst til hægri á síðunni eða farið í Noona-appið og leitað að Loforði.
Hvenær á ég að bóka fyrstu mátun?
Best er að bóka fyrstu mátun um 10–12 mánuðum fyrir brúðkaupsdaginn. Það getur tekið allt að sjö mánuði að fá sérpantaðan kjól afhentan.
Þarf ég að bóka tíma?
Já, bóka þarf tíma í brúðarkjólamátun svo við getum tekið vel á móti þér og gefið þér nægan tíma.
Hvað er gott að undirbúa?
Þú getur vistað myndir af kjólum sem þér líst vel á af vefsíðunni okkar. Það hjálpar okkur að átta okkur á því hvaða stíll heillar þig.
Hvað má ég taka marga með mér í mátun?
Við mælum með að taka ekki fleiri en 3–5 með þér. Ef þú vilt taka fleiri með geturðu bókað það sérstaklega.
Í hvaða stærðum eru kjólarnir sem hægt er að máta?
Við erum með sýniseintök af brúðarkjólum í stærðum 6–24. Úrvalið er mismunandi eftir kjólum, svo þú mátt endilega hafa samband ef þú ert með ákveðinn kjól í huga.
Hvernig fer greiðsla fyrir kjól fram?
Helmingur verðsins er greiddur við pöntun og seinni helmingurinn þegar kjóllinn kemur til landsins.
Þarf yfirleitt að breyta kjólnum?
Í flestum tilfellum þarf að laga kjólinn að þér. Þegar hann er kominn ræðum við hvaða breytingar henta og þú greiðir fyrir þær þegar þeim er lokið.
Eru breytingar innifaldar í verði kjólsins?
Nei, breytingar eru reiknaðar sérstaklega eftir því hvaða vinnu kjóllinn þarfnast. Sjá breytingarferlið og verðlagningu.
Hvað ef brúðkaupið er fyrr?
Hafðu samband við okkur. Við getum skoðað með þér hvaða kjólar eru í boði og hvað er raunhæft miðað við tímann sem er til stefnu.
Þarf ég að vita hvaða stíl ég vil áður en ég kem?
Nei, það er í góðu lagi að vera óviss. Mátunin er einmitt tækifæri til að prófa ólík snið og sjá hvað þér líður best í.
Mátun · Leiga · Afhending
Fataleiga
Gott að vita þegar þú leigir föt fyrir stóra daginn.
Mátun
Þarf að bóka tíma?
Já það er mikilvægt að bóka tíma í allar fataleigu mátanir. Þegar þú kemur í bókaðan tíma er frátekinn màtunarklefi og starfsmaður sem er þjálfaður í að hjálpa til með stærð og mælingar.
Hvernig bóka ég tíma?
Þú getur bókað tíma með því að ýta á „Bóka tíma“ efst til hægri á síðunni eða farið í Noona-appið og leitað að Loforði.
Hvenær á að bóka tíma?
Þeim mun fyrr er alltaf þeim mun betra en lang flestir eru að koma með 1-4 mánaða fyrirvara. Mælum með lengri fyrirvara fyrir stóra viðburði og sumar mánuðina.
Hvað ef um er að ræða stuttan fyrirvara?
Við getum lang oftast unnið með hvaða fyrirvara sem er á meðan birgðir endast og að starfsmaður með saumakunnáttu er við. Flýtigjald fellur á leiguverð ef um er að ræða minna en viku fyrirvara.
- Með 3-7 daga fyrirvara er tekið 3.000 kr flýtigjald
- Með 1-2 daga fyrirvara er tekið 5.000 kr flýtigjald
Flýtigjald er einungis tekið ef við þurfum að senda fötin á saumastofuna. Það þarf þó langt oftast að gera að minnsta kosti síddarbreytingu. Endilega hringdu í okkur eða sendu tölvupóst eg þú sérð ekki lausan tíma á Noona í tæka tíð fyrir þinn viðburð. Stundum getum við aðstoðað með því að færa til aðrar tímabókanir.
Hvað ef það er ekki laus tími?
Ef þú finnur ekki tíma sem hentar í tæka tíð fyrir þinn viðburð máttu alltaf prófa að senda okkur línu á loford@loford.is eða hringja í síma 789-8133. Reynum alltaf að hjálpa eins og við mögulega getum.
Leiga, greiðslur og breytingar
Hvað er leigutíminn langur?
Flestar leigur miðast við helgi, sem er þá sótt á föstudegi og skilað á mánudegi. Ef um er að ræða notkun á virkum degi skal sækja deginum fyrir og skila daginn eftir. Þetta miðar þó við opnunartíma hverju sinni. Við förum vel yfir þetta í leigusamningi við staðfestingu á leigu. Verð endurspeglar þennan leigutíma. Ef um er að ræða lengri leigu má hafa samband á loford@loford.is til þess að fá verðtilboð.
Hvað er innifalið?
Inn í listuðu verði eru fatnaðurinn à leigutíma, breytingar og hreinsunin.
- Smóking: hvítur eða svartur jakki, svartar buxur buxur og hvít skyrta
- Svört jakkaföt: jakki, buxur og hvít skyrta.
- Blà jakkaföt: jakki, buxur og hvít skyrta. Einnig er hægt að velja um að fá vesti í stíl.
- Kjólföt: jakki, buxur, skyrta, hvítt vesti og hvít slaufa
Erum einnig að leigja stakar flíkur. Ef þú vilt fá verð á lengri leigu endilega sendu okkur línu.
Hvað er ekki innifalið?
Við leigjum ekki neina fylgihluti fyrir utan við kjólfötin þar sem þeir eiga til með að týnast í leigu eða hreinsuninni. Skyrturnar okkar kalla á ermahnappa. Erum með slíkt til sölu en um að gera að nýta þá sem eru innan fjölskyldunnar. Einnig erum með fjölbreytt úrval af öðrum fylgihlutum til sölu líkt og bindi, slaufur, klúta, axlabönd og fleira.
Hvernig breytingar eru gerðar?
Breytingarnar eru innifaldar í leiguverði. Við breytum ekki sniði á fötum. Algengustu breytingarnar eru að aðlaga sídd og mittis vídd á buxunum. Það þurfa nánast allir á þessum breytingum à að halda enda er nánast enginn að falla í alveg sömu mál.
Hvernig er staðfest fataleigu?
Ef þú ákveður að staðfesta fötin til leigu þá skráum við allt niður og gerum leigusamning. Við staðfestingu er greitt 50% af fatnaði og fötin tekin frà þann dag sem er óskað. Staðfestingargjald er ekki endurgreitt undir neinum kringumstæðum. í vikunni fyrir leigu byrja starfsmenn á saumastofunni að undirbúa fötin og gera þær breytingar sem þarf ásamt því að yfirfara og gufa fyrir afhendingu.
Hvað ef dagsetning breytist?
Ef tímasetning hefur breyst er minnsta mál að hafa samband og biðja okkur um að færa leiguna á aðra dagsetningu. Þarna er mikilvægt að vera með að minnsta kosti viku fyrirvara þar sem að við vinnum yfirleitt fötin á mánudögum. Ef búið er að vinna fötin tökum við auka 5.000 kr vinnslugjald en sjálfsagt að færa leiguna þrátt fyrir skamman fyrirvara.
Hvað ef þörf er á annarri stærð?
Það er alltaf hægt að hafa samband við okkur ef þú telur þig þurfa aðra stærð en þú bókaðir. Við tökum þá aðra mátun og mælingu. Sú þjónusta kostar 3.000 kr og er einnig hægt að bóka á Noona. Þá getum við breytt stærðinni eða máltökunni út frá þörf. Þetta veltur auðvitað á framboði svo mikilvægt er að hafa samband með eins góðum fyrirvara og hægt er. Þarna er mikilvægt að vera með að minnsta kosti viku fyrirvara þar sem að við vinnum yfirleitt fötin á mánudögum. Ef búið er að vinna fötin tökum við auka 5.000 kr vinnslugjald en sjálfsagt að breyta stærðinni þrátt fyrir skamman fyrirvara.
Úrval og stærðir
Hvernig fatnað eru þið með til leigu?
Við erum með kjólföt, smóking, hvítan smóking, blá jakkaföt og svört jakkaföt. Erum einnig að leigja stakar flíkur. Mæli með að skoða „Hvað er innifalið?“ til þess að sjá hvað fylgir í leigunni.
Hvaða stærðir eru þið með til leigu?
Við erum með eftirfarandi stærðir til leigu. Ef þú ert óviss með þína stærð endilega sendu okkur línu á loford@loford.is
- Smóking: Stærðir 44-66 í góðri blöndu af regular, short og long
- Svört jakkaföt: Stærðir 46-66 í góðri blöndu af regular og short.
- Blá jakkaföt: Stærðir 44-60 í góðri blöndu af regular, short og long.
- Kjólföt: Flest allar stærðir í 44-64 í góðri blöndu af regular, short og long
- Hvítur smóking: Stærðir 46-58 í góðri blöndu af regular, short og long
Leigjum einungis á herra en erum með fjölbreytt úrval til sölu af drengja fatnaði á frábæru verðbili.
Afhending og skil
Hvenær á afhending sér stað?
Þú færð sms þegar fötin eru tilbúin fyrir þig að sækja en lang oftast má koma að sækja fötin við opnun á umsömdum degi. Ef þú hefur ekki fengið sms mælum við með því að hringja og taka stöðuna. Mikilvægt er að máta fötin samdægurs og hafa samband strax ef það vantar eitthvað uppá.
Hvert sæki ég fötin?
Þú sækir fötin í verslunina okkar í Kringlunni 7 – Húsi verslunarinnar. Inngangurinn okkar snýr í áttina að Kringlunni.
Hvert skila ég fötunum?
Skil fara fram á umsömdum degi í fatahreinsunina Snögg í Suðurveri. Hreinsunin er innifalin í leiguverði svo þú greiðir ekkert við skil. Þær hjá Snögg taka á móti þeim og þurfa ekki neinar upplýsingar frá þér þar sem við erum með öll föt merkt með númeri sem tengist inn á hvern og einn leigusamning. Opnunartími Snögg er 8-18 virka daga.
Hvað ef ég skila of seint?
Þegar skilað er of seint hefur það mikil áhrif á okkar rekstur þar sem að fötin eru mögulega að fara í útleigu aftur nokkrum dögum síðar. Í þeim tilfellum neyðusmst við til þess að rukka sekt líkt og tekið er fram í leigusamningi.
