Brúðarkitt Classic – litlu hlutirnir sem bjarga stóra deginum!
Við hjá Loforði vitum af reynslu að það eru oft litlu hlutirnir sem skipta mestu máli á brúðkaupsdaginn!
Í Classic brúðarkittinu höfum við tekið saman það sem gott er að hafa við höndina, frá því að þú ferð í kjólinn þar til líður á veisluna. Allt kemur saman í handhægri snyrtitösku merktri Loforði.
Hvað er í brúðarkittinu?
Saumakit – fyrir óvæntu uppákomurnar
Losnaði tala eða gaf buxnafaldurinn sig? Með nál og tvinna við höndina er oft hægt að redda málunum á örskotsstundu.
Heklunál – litla leynivopnið þegar kjólnum er hneppt
Litlu lykkjurnar á bakinu geta verið seinlegar í hneppingu. Með heklunálinni er auðveldara að smeygja þeim yfir hnappana svo þú komist fyrr í draumakjólinn þinn!
Boomba fatalímband – heldur flíkinni á sínum stað
Handhægt þegar þú vilt festa hálsmál eða annan hluta flíkurinnar við húðina svo hann sitji eins og þú vilt.
Hársprey í ferðastærð – fyrir síðustu lagfæringarnar
Lítið hársprey sem kemst auðveldlega fyrir í töskunni og er gott að grípa í ef hárgreiðslan þarf smá lagfæringu fyrir myndatöku eða á dansgólfinu.
Fit Me glært púður – þegar þú vilt draga úr gljáa
Gott að hafa við höndina til að fríska upp á förðunina þegar líður á daginn.
Fimm Lovebasiq blettahreinsiklútar – fyrir litlu óhöppin
Farðablettur á fötunum? Þá er gott að eiga blettahreinsiklút við höndina. Í settinu eru fimm klútar, svo þú átt fleiri til vara.
Allt á einum stað – tilbúið fyrir stóra daginn!
Loforð-snyrtitaskan fylgir með og heldur öllu saman. Tilvalið fyrir brúðina sem vill hafa helstu reddingarnar innan seilingar og líka skemmtileg gjöf fyrir verðandi brúði!











