Þessi rakagefandi hydrogel-maski róar húðina og styrkir varnarhjúp hennar. Jökulvatnið í maskanum veitir húðinni djúpan raka og hjálpar henni að taka betur upp næringarefni.
Maskinn er úr þykku geli sem verður smám saman gegnsætt á meðan hann gefur húðinni raka og næringu. Hann er mildur, laus við ertandi efni og hentar vel viðkvæmri húð.
Gott er að nýta gelbútana úr augn- og munnopum maskans á svæði þar sem þú vilt meiri raka og stinnari húð, til dæmis við hliðar nefsins, undir augunum eða á hálsinum.
Notkunarleiðbeiningar
Yfir nótt
Settu maskann á sem síðasta skrefið í húðumhirðunni. Láttu hann liggja á yfir nótt og fjarlægðu hann morguninn eftir.
Dagnotkun
Undirbúðu húðina með andlitsvatni (toner) eða serumi og settu maskann á. Láttu hann liggja á í 3–4 klukkustundir eða þar til hann er orðinn gegnsær.



















