Mildar og rakagefandi tónerskífur sem róa húðina og veita henni samstundis djúpan raka. Skífurnar innihalda Cera-Nol, panthenol, hýalúrónsýru og seramíð sem styrkja varnarhjúp húðarinnar og hjálpa henni að halda rakanum lengur.
Skífurnar innihalda 10% jökulvatn sem styður við upptöku virkra efna og hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi húðarinnar. Þær eru ofnæmisprófaðar, einstaklega mildar og henta til daglegrar notkunar fyrir allar húðgerðir, þar á meðal mjög viðkvæma húð.
Gott er að nýta tónerskífurnar sem litla andlitsmaska á svæði sem þurfa aukinn raka.
Notkunarleiðbeiningar
Strjúktu tónerskífu varlega yfir hreint andlit og forðastu augnsvæðið.


























