Serum og andlitsúði í einu. Collagen Peptide Jelly Serum Mist er hlaup sem breytist í fínan úða um leið og því er úðað og myndar rakavörn á húðinni sem gufar ekki upp eins og venjulegur vatnsúði. Formúlan inniheldur 77% kollagenvatn með lágum sameindaþunga (243Da) og blöndu af 10 peptíðum sem gefur húðinni djúpan raka, stinnari ásýnd og fallegan ljóma. Létt og fersk áferð sem hentar öllum húðgerðum og má nota yfir farða.
Stærð: 50 ml.
Notkunarleiðbeiningar
Sem rakaúði: úðaðu í um 20 cm fjarlægð yfir andlitið, hvenær sem er dagsins, líka yfir farða.
Sem serum: úðaðu nær húðinni til að fá þéttara serum og klappaðu því inn í húðina.




