Rakagefandi maski sem veitir húðinni djúpan raka og dregur úr sýnileika svitahola. Maskinn inniheldur kollagen og góðgerla sem hjálpa til við að bæta teygjanleika húðarinnar, slétta úr fínum línum og styrkja varnarhjúp hennar.
Formúlan er mild og ofnæmisprófuð, hentar vel viðkvæmri húð og gefur henni langvarandi ljóma.
Gott er að nýta gelbútana úr augn- og munnopum maskans á svæði þar sem þú vilt meiri raka og stinnari húð, til dæmis við hliðar nefsins, undir augunum eða á hálsinum.
Notkunarleiðbeiningar
Yfir nótt
Settu maskann á í lok húðumhirðunnar. Láttu hann liggja á yfir nótt og fjarlægðu hann morguninn eftir.
Dagnotkun
Undirbúðu húðina með andlitsvatni (toner) eða serumi og settu maskann á. Láttu hann liggja á í 3–4 klukkustundir eða þar til hann er orðinn gegnsær.



















