Styling Oil – Næring, mýkt og glans fyrir hárið – Í ferðastærð
Dásamleg hárnæringarolía sem gefur hárinu samstundis fallegan glans, dregur úr úfningi og gerir það silkimjúkt og auðveldara í meðförum.
Olían inniheldur nærandi argan- og jojobaolíur sem hjálpa til við að næra, endurbyggja og vernda hárið ásamt því að viðhalda náttúrulegu rakajafnvægi þess.
Nokkrir dropar í rakt eða þurrt hár nægja til að gefa því aukna mýkt, næringu og glans án fyrirhafnar.
Af hverju Styling Oil?
- Dregur úr úfningi (frizz) og sléttir yfirborð hársins.
- Gefur fallegan glans og silkimjúka áferð.
- Veitir hitavörn og hjálpar til við að vernda hárið gegn hitaskemmdum.
- Inniheldur argan- og jojobaolíur sem næra og vernda hárið.
- Hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi hársins.
- Hentar bæði í rakt og þurrt hár og auðveldar að greiða úr flækjum.
Notkunarleiðbeiningar
Setjið nokkra dropa í lófana og dreifið jafnt í lengdir og enda hársins. Má nota bæði í rakt og þurrt hár eftir þörfum.
Fyrir silkimjúkt, glansandi og fallegt hár!









