Sívinsælu 100% mulberry silkigrímurnar eru komnar aftur í svörtu. Þær eru úr þrem lögum af silki, eitt lagið er fóðrað með límfóðri. Það er vasi sem hægt er að setja filter og það sem gerir þessar svona frábærar er að þær eru með þremur vírum sem halda grímunni frá munni og nefi svo auðvelt er að anda. Athugið að þetta er líklega síðasta sendingin sem við fáum af grímunum svo tryggðu þér eintak strax.
Þvoið í höndum á 30 gráðum, mælum með silki sápu eða álíka mildri. Mikilvægt að nota sápu þar sem ekki má þvo á hærri hita. Mælum með að þvo alltaf í lok dags og láta þorna yfir nótt.