Falleg barna- og unglingajakkafatasett frá Fouger. Innifalið er jakki, buxur og vesti. Jakkafötin henta vel fyrir brúðkaup, fermingar og önnur hátíðleg tilefni.
Innifalið í verði:
- Jakki
- Buxur
- Vesti
Settið er selt sem þrjár samstæðar vörur í sömu stærð. Ekki er hægt að blanda saman mismunandi stærðum af jakka, buxum og vesti.
Mittisstilling á buxum:
- Í stærðum 1–7 er teygja í mittinu.
- Í stærðum 8–22 eru stillanlegar sylgjur á hliðunum sem gera kleift að víkka eða þrengja mittið.
Buxurnar koma með góðri sídd og því þurfa flestir að láta stytta þær. Við erum með saumastofu hjá Loforði og getum aðstoðað við styttingu og aðrar nauðsynlegar lagfæringar.
Mikilvægt um stærðarval
Stærðarnúmerin 1–22 miðast ekki beint við aldur barnsins. Börn og unglingar á sama aldri geta þurft mjög ólíkar stærðir eftir hæð og vaxtarlagi. Til dæmis getur 14 ára unglingur þurft allt frá stærð 10 upp í stærð 22.
Við mælum því með að velja stærð út frá líkamsmáli eða koma til okkar í mátun. Ef þú ert óviss um stærðina er þér alltaf velkomið að hafa samband og við aðstoðum við valið.
Ýttu hér til að sjá stærðartöflu Fouger
Fullkomnaðu dressið með hvítri barna- og unglingaskyrtu. Við seljum einnig úrval af skyrtum, slaufum og bindum fyrir börn og unglinga.
Skyrta, slaufa og bindi fylgja ekki jakkafötunum.













