Brúðarkit Loforðs – litlu hlutirnir sem bjarga stóra deginum!
Við hjá Loforði vitum af reynslu að það eru oft litlu hlutirnir sem skipta mestu máli á brúðkaupsdaginn!
Í gegnum árin höfum við alltaf lagt áherslu á að minna brúðirnar okkar á nokkra ómissandi hluti sem gott er að hafa við höndina á stóra deginum. Hingað til hefur þurft að leita að þessum vörum á nokkrum mismunandi stöðum, en nú höfum við tekið þær saman í eitt handhægt brúðarkit á frábæru verði!
Brúðarkitið inniheldur fjórar nytsamlegar vörur sem koma saman í fallegri snyrtitösku merktri Loforði.
Hvað er í brúðarkitinu?
Saumakit – fyrir óvæntu uppákomurnar
Það er alltaf gott að hafa nál og tvinna við höndina! Hvort sem það losnar tala, krókur dettur af eða buxnafaldur gefur sig, þá getur lítið saumakit bjargað málunum á örskotsstundu. Það er næstum alltaf einhver í brúðkaupsveislunni sem kann að handleika nál og tvinna!
Heklunál – litla leynivopnið við að hneppa brúðarkjólnum
Á mörgum brúðarkjólum þarf að smeygja litlum lykkjum yfir hnappa, ýmist til að loka bakinu eða fela rennilásinn. Þetta getur reynst ansi tímafrekt, sérstaklega ef sá sem hjálpar þér er með stuttar neglur eða langar gervineglur. Heklunálin gerir þetta mun auðveldara og fljótlegra svo þú komist fyrr í draumakjólinn þinn!
Fatalím – heldur öllu á sínum stað
Algjör snilld að hafa við höndina á brúðkaupsdaginn! Fatalím hjálpar til við að festa fatnað við húðina svo allt haldist þar sem það á að vera. Það getur einnig komið sér vel við ýmsar skyndilausnir, til dæmis ef þarf að festa buxnafald tímabundið.
Blettahreinsir – fyrir litlu óhöppin
Farðablettur á brúðarkjólnum? Það þarf ekki að þýða stórslys! Blettahreinsirinn er hannaður til að hjálpa við að fjarlægja farðabletti af fatnaði og getur komið sér einstaklega vel þegar minnst varir.
Allt á einum stað – tilbúið fyrir stóra daginn!
Fjórar handhægar vörur í fallegri Loforð-snyrtitösku sem auðvelt er að taka með sér á brúðkaupsdaginn.
Fullkomið fyrir brúðina sem vill vera við öllu búin – og líka frábær lítil gjöf fyrir verðandi brúði!








