Brúðarkitt Delux – litlu hlutirnir sem bjarga stóra deginum!
Við hjá Loforði vitum af reynslu að það eru oft litlu hlutirnir sem skipta mestu máli á brúðkaupsdaginn! Í Delux brúðarkittinu höfum við tekið saman nytsamlegar vörur fyrir allt frá fyrstu hneppingunni á kjólnum til síðasta dansins.
Hvað er í brúðarkittinu?
Saumakit – fyrir óvæntu uppákomurnar
Losnaði tala eða gaf buxnafaldurinn sig? Það er gott að hafa nál og tvinna innan seilingar þegar þarf að redda málunum í flýti.
Heklunál – litla leynivopnið þegar kjólnum er hneppt
Heklunálin hjálpar þér eða þeim sem aðstoðar þig að smeygja litlu lykkjunum yfir hnappana á kjólnum.
BOOMBA fatalímband – heldur flíkinni á sínum stað
Handhægt tvíhliða límband þegar þú vilt festa hálsmál eða brún á flík við húðina svo hún sitji eins og þú vilt.
Clutch fljótandi fatalím – fyrir nákvæma festingu
Fljótandi fatalím sem hentar vel þegar þú vilt bera límið á lítið svæði, til dæmis við brún á hálsmáli eða öxl.
Bride & Shine blettahreinsisprey – fyrir óvænta bletti
Handhægt 30 ml blettahreinsisprey fyrir gerviefni. Fylgdu leiðbeiningunum á umbúðunum og prófaðu fyrst á lítt áberandi stað.
Þrír Lovebasiq blettahreinsiklútar – þegar farðinn fer á flíkina
Þrír stakpakkaðir klútar sem gott er að hafa við höndina ef farði smitast í fötin.
Fit Me glært púður – til að fríska upp á förðunina
Gott að grípa í ef þú vilt draga úr gljáa fyrir myndatöku eða þegar líður á veisluna.
Gelpúði – fyrir þreytta fætur
Mjúkur gelpúði í skóna sem veitir iljunum dempun þegar þú stendur lengi eða dansar fram eftir kvöldi.
Allt á einum stað – tilbúið fyrir stóra daginn!
Vörurnar koma saman í glærri Loforð-snyrtitösku sem auðvelt er að taka með sér. Tilvalið fyrir brúðina sem vill hafa helstu reddingarnar innan seilingar og líka skemmtileg gjöf fyrir verðandi brúði!








