Kæri viðskiptavinur
Samningur þessi hefur þann tilgang að báðir aðilar, seljandi og kaupandi viti við hverju megi búast og skilji hverjar skuldbindingar hans eru.
Innborgun
Þegar gerð er pöntun hjá okkur þarf viðskiptavinur að greiða 50% af heildar upphæð vörunnar sem staðfestingargjald. Seinni helmingur greiðist eigi síðar en 10 dögum eftir að varan kemur til landsins, nema um annað sé samið. Við munum áætla tímann sem það tekur að fá vöruna en getum aldrei gefið nákvæma dagsetningu.
Greiðsla
Ef við af einhverjum ástæðum höfum tekið við greiðslu en getum ekki pantað kjólinn eða afhent hann þá endurgreiðum við þér að fulu innborgunina. Að öðru leiti er innborgun eða greiðsla fyrir kjól aldrei endurgreidd. Vara telst eign Loforðs þangað til hún hefur verið greidd að fullu og fæst hún ekki afhent fyrr en greitt hefur verið fyrir hana að fullu.
Geymslugjald
Sæki viðskiptavinur ekki vöru innan 14 daga leggst á geymslugjald, 500 kr. á dag frá komu í verslun, nema að um annað sé samið. Einnig ef hann er ekki sóttur innan 14 daga þegar hann er búinn í breytingum.
Breytingar
Við ábyrgjumst engar breytingar á kjólnum ef breytingar eru gerðar annarsstaðar en á okkar saumastofu . Verð á breytingum er aldrei innifalið í verði á kjól og þarf í langflestum tilfellum að gera breytingar á kjólnum. Við mælum með að eiga bókaðan tíma í breytingar ca. 2 mánuðum fyrir brúðkaupsdaginn til að fá örugglega pláss í breytingar. Ef þú af einhverjum ástæðum vilt koma aftur í breytingarmátun þá er rukkað aukalega fyrir þann tíma. Mjög mikilvægt er að hafa rétta skó með sér í breytingarmátun annars er ekki hægt að taka síddar mælingu.
Stærðir
Sérpantaðir kjólar eru ekki sérsaumaðir á viðskiptavin, þeir eru pantaðir í þeirri stærð sem er næst þeirra stærð svo eðlilegt er að það þurfi að gera breytingar þegar kjólinn kemur til landsins. Við tökum mál af þér til að panta kjólinn en berum enga ábyrgð á því ef þú breytist (þyngdaraukning/þyngdartap) frá því máltaka á sér stað þangað til kjóllinn kemur. Með undirritun þessa samnings samþykkir þú að málin sem tekin eru af þér séu rétt.