NÝTT LOFORÐ TEYMI
Loforð er í eigu Ásdísar Gunnarsdóttur og Írisar Hrannar Hreinsdóttur. Loforð er stofnað í janúar 2019 af Ásdísi sem er kjólameistari en í ágúst 2023 sameinaðist Loforð versluninni Brúðhjón sem var í eigu Írisar en Brúðhjón kom út frá Brúðarkjólaleigu Katrínar sem stofnuð var árið 1985. Það má því með sanni segja að við búum yfir margra ára reynslu og mikilli fagmennsku. Áherslan okkar er að veita persónulega þjónustu og vandaðar vörur. Brúðarfatnaður og fylgihlutir eru okkar ástríða og við viljum endilega fá að taka þátt í að gera ykkar dag sérstakan.