Brúðarkit Loforðs samanstendur af þremur vörum sem allar brúðir þarfnast. Þetta eru vörur sem við höfum alltaf reynt að minna okkar brúðir á að versla sér og fengust ekki á einum stað. Núna bjóðum við upp á þessar vörur saman í pakka á frábæru verði.
- Saumakit: það er nauðsynlegt að hafa slíkt á stóra deginum. Það er alltaf einhver sem kann á nál og tvinna í veislunni og þa ef það dettur krókur, tala eða jafnvel buxnafaldur þá er hægt að redda málunum.
- Heklunál: í lang flestum brúðarkjólum þarf að lykkja lyssu yfir hnapp til þess að fela rennilásinn eða til þess að hneppa lokuðu baki. Heklunálin hjálpar þeim sem eru ekki með neglur eða jafnvel með gervineglur. Heklunálin auðveldar og flýtir fyrir þessu ferli við að klæða þig í fallega kjólinn þinn.
- Fatalím: allir þurfa að eiga fatalím sérstaklega á brúðkaupsdeginum. Það er notað til þess að festa flíkur við húðina eða jafnvel festa upp buxnafald.